Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Fræðsluvefur Matís

Á vísan að róaMatís ohf (áður Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins) hefur stundað rannsóknir og unnið margvísleg verkefni fyrir íslenskan sjávarútveg og fiskiðnað í áratugi. Niðurstöður þessara rannsókna og verkefna voru birtar með margvíslegum hætti, t.d. í skýrslum, pistlum, ritum og handbókum, auk námskeiða og ráðgjafar til fyrirtækja og einstaklinga.Sjómaður með vænan þorsk

Smám saman safnaðist saman mikil vitneskja um fisk, hvernig best er að meðhöndla hann, vitneskja um helstu verkunar- og geymsluaðferðir á fiski og öðrum matvælum. Sumt af þessu er byggt á niðurstöðum úr rannsóknum sem gerðar voru á Rf og verður haldið áfram á Matís ohf, annað er þekking sem starfsfólk hefur aflað sér í gegn um áralangt samstarf við fólk í sjávarútvegi og fiskiðnaði, sem og innlenda og erlenda vísindamenn. Þessum fróðleik um fisk og flest það sem honum við kemur er nú miðlað á Fræðsluvef Matís, sem þar með leysir af hólmi eldra vefsetur um sama efni, sem hét Á Vísan að róa.

Þetta er mikið verkefni og þess eðlis að það tekur trúlega seint eða aldrei enda og hér mun því bætast við efni eftir því sem fram líða stundir.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 
 
 

Leit



 
 
efnisyfirlit síðunnar

þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefumsjónarkerfivefumsjónarkerfi - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.