Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Svör við fyrirspurnum

Baumé-gráður

Baumé-gráður eru stundum notaðar til þess að segja til um pækilstyrk, hvert er samhengið á milli Baumé-gráða og saltstyrks í pækli?

Svar:

Baumgráður segja til um eðlisþyngd vökva en ekki styrk lausna. Franskur efnafræðingur að nafni Antoine Baumé bjó til kvarða á flotmæla. Fyrir vökva sem eru þyngri en vatn, þá hafði hann 0°Bé í hreinu vatni en 15°Bé í 15% pækli (w/w). Fyrir vökva sem eru léttari en vatn þá merkti hann flotmælinn með 10°Bé í hreinu vatni en 0°Bé þegar hann setti flotmælinn í 15% saltpækil. Til þess að finna út styrk lausnanna þá þarf að reikna út eðlisþyngd vökvans út frá Baumé gráðunum og síðan að athuga í töflum hver styrkurinn er. Hægt er að finna töflu um saltpækil með því að smella hér - þessi tafla sýnir samhengi Baumégráða og saltstyrks pækils.



 

 

Leit



 
 
efnisyfirlit síðunnar

þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefhönnunvefhönnun - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.