Svör við fyrirspurnum
Mæling á íshúð
Hvernig er best að mæla íshúð á lausfrystum flökum og flakastykkjum?
Svar:
Það er að sjálfsögðu háð því hvort verið er að fylgjast með vinnslu eða hvort verið er að skoða vöru eftir framleiðslu.
Í vinnslu er auðvelt að fylgjast með íshúð með þeim hætti að vigta nokkur flök eða flakastykki
eftir frystingu, skrá hjá sér vigtina, renna síðan flökunum í gegnum íshúðunarbaðið og vigta að nýju og athuga hve þyngdaraukningin er mikil. Hafa verður þó í huga að ef varan fyrir frystingu er mjög blaut þá getur það vatn komið sem viðbót við mælingu hjá kaupanda eða við eftirlit síðar.
Þegar verið er að mæla íshúð á vöru eftir framleiðslu, þá vandast oft málið. Til eru nokkrar aðferðir og geta kaupendur sjávarafurða einnig búið til sínar eigin aðferðir, sem ekki eru allar í samræmi við það sem eðlilegt getur talist. Í kaflanum um gæði er fjallað sérstaklega um íshúð og gagnsemi hennar, einnig er þar fjallað um helstu aðferðir til að mæla íshúð á mismunandi sjávarafurðum.
Algengasta og auðveldasta aðferðin fyrir flök og flakastykki er að vigta stykkin og skrá hjá sér þyngdina. Skola síðan flökin undir kaldri vatnsbunu þangað til að íshúðin hefur verið skoluð af, þerra þá stykkin létt með pappírsþurrku. Að lokum eru stykkin vegin og athugað hve mikið þau hafa lést. Sjá nánar um íshúð

