Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Svör við fyrirspurnum

Fjöldi Pseudomonas gerla

Einn af mínum viðskiptavinum er að fara fram að ég upplýsi hann um fjölda Pseudomonas gerla í þeim fiskafurðum sem ég sel honum. Er hægt að fá hjá ykkur smá upplýsingar um þessa tegund og hvað sé hægt að búast við háum tölum um fjölda?

Svar:

Pseudomonas er ættkvísl gerla (baktería) sem hefur að geyma Gram-neikvæða stafi. Þessir gerlar hafa í gegnum tíðina verið taldir aðalskemmdargerlar í kældum fiski. Þeir geta verið á fiski upp úr sjó en finnast einnig víða í illa þrifnu vinnsluumhverfi. Þeir eru kuldaþolnir, sem þýðir að þeir geta vaxið við 0-1°C. Langþekktasti skemmdargerillinn í kældum fiski heitir í dag Shewanella putrefaciens sem var áður flokkaður til Pseudomonas ættkvíslarinnar.

Það er reynsla okkar á örverustofu Rf að fjöldi þeirra í frystum fiskbitum sé í langflestum tilfellum undir 10.000 í 1 gr. Tekið skal fram að gerlar þessir eru ekki skaðlegir heilsu manna.

Sjá nánar um örverur í fiski.



 

 

Leit



 
 
efnisyfirlit síðunnar

þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefhönnunvefhönnun - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.